Category: bar
Arfurinn
Jói var á sínum stað á sveitakránni og virtist nokkuð dapur svo þjónninn fór að ræða við hann um málefni dagsins.
Eftir stutt samtal fannst þjóninum rétt að kanna hver vandi Jóa væri svo hann gæti fengið hann til að taka gleði sína á ný og spurði hvort eitthvað væri að.
Jói sagði: „Mamma dó í júní og ég erfði 2 milljónir.“ Þjónninn sagði við Jóa: „Það var leitt að heyra þetta.“ „Svo dó pabbi í ágúst og ég erfði 5 milljónir eftir hann,“ sagði Jói. Þjóninum var ekki farið að lítast á blikuna og sagði: „Báðir foreldrar þínar deyja á nokkrum mánuðum, þetta hlýtur að vera erfitt.“ Jói hélt áfram og sagði: „í október dó föðursystir mín og ég erfði 2,5 milljónir eftir hana.“
Barþjónninn var orðinn fullur samúðar og taldi sig vera kominn með góðan skilning á vandanum þegar Jói hélt áfram og sagði: „Síðan þá hefur ég ekki fengið neinn nýjan arf.“
Dauður hundur
Mexíkani kom æðandi inn á bar í Bandaríkjunum og kallaði yfir gestina: “Hver á Rottweiler hundinn sem er bundinn við tréverkið hérna fyrir utan?”
“Ég á hann” var svarað á móti. “Chihuahua hundurinn minn hefur víst drepið hann.” “Hvernig í ósköpunum vildi það til?”
“Hann stóð í honum.”
Múslimarnir
Gúndi gasalegi og George Bush voru á fínum veitingastað að snæða kvöldverð saman.
Maður, sem sat ekki langt frá þeim, tók eftir því að þeir
áttu í heitum samræðum og töluðu mjög ákaflega.
Maðurinn stóðst ekki mátið og stóð upp og gekk til þeirra í þeirri von að fá að komast að samræðum þeirra.
Þegar hann kom til þeirra va…rð hann mjög feiminn en samt sem áður sagði hann: “Ég komst ekki hjá því að heyra til ykkar, og af algjöri forvitni spyr ég; hvað voruð þið að tala um?
Gúndi glotti í áttina til George´s og sagði: “Gaman að þú spurðir, væni.
Við Goggi erum að búa okkur undir árás á Írak mjög fljótlega. Okkur finnst heimurinn vera í hættu út af þeim.
En það á samt að vera algjört hernaðarleyndarmál!”
“Vá, það er rosalegt! Eruð þið búnir að gera einhverjar áætlanir, t.d. hversu marga þið ætlið að drepa?” spurði maðurinn.
“Gúndi glotti aftur til Gogga og sagði: “Já, það er allt frágengið. Takmarkið okkar er að drepa um 2 milljónir múslima og 1 tannlækni.”
“Ha?” -sagði maðurinn gáttaður.
“Bíddu, af hverju í ósköpunum tannlækni?
Hver er ástæðan fyrir því?”
“HAHAHAHAHA!
Þarna hefurðu það, Goggi minn” öskraði Gúndi yfir allan staðinn.
“Ég sagði þér að enginn myndi pæla í þessum múslimum!!”
Kúrekinn í Texas
Maður nokkur býr í stórborgnni New York. En þegar líða tekur á fer honum að leiðast það líf þannig að hann ákveður að flyja út í óbyggðir Texas.
Hann er þar í 3 mánuði og er ekki búinn að sjá aðra manneskju ennþá.
Svo einn daginn kemur miðaldra kúreki ríðandi á hesti til hans með strá í munninum.
Kúrekin segir við mannin: Ég er kominn hingað til að bjóða þér í partý.
Þá hugsar maðurinn með sér,, ó vá partý, hef ekki séð aðra manneskju lengi þannig að þetta verður svaka stuð.! Svo segir maðurinn við kúrekan: Er það? geggjað, og hérna, hvernig verður þetta party?
Og kúrekinn svarar: Tjaaa, eitt get ég sagt þér, það verður mikið um drykkju, mikið um slagsmál og mjög mikið um ríðingar.!
Þá hugsar maðurinn með sér,, ó vá ó vá ég get ekki beðið.! Svo segir maðurinn við kúrekan: Og hérna, hverju á að klæðast fyrir þetta party?
Þá svarar kúrekinn: Það skiptir ekki öllu máli, það verða bara Ég og Þú strákur.. !
Áttu brauð?
Hafið þið heyrt um öndina sem gekk inn á bar og spurði barþjóninn: Áttu brauð? Nei svaraði barþjóninn. Aftur spurði öndin með sinni nefmæltu rödd: áttu brauð? Nei var svarað aftur. Enn spurði öndin: Áttu brauð? Nú var farið að fjúka í barþjóninn og hann hvæsti á öndina: Þú ert inni á bar, hér er ekkert brauð og ef þú hættir þessu ekki þá negli ég aftur á þér gogginn við borðið. Öndin hallaði undir flatt, leit á barþjóninn og spurði: áttu nagla? NEI! hvæsti barþjónninn. Þá brosti öndin og sagði: Áttu brauð
Einn fyrir vin minn
Það voru tveir menn sem voru rosalega góðir vinir.vinrnir tveir fóru alltaf á barinn en einn daginn dó annar maðurinn. og hinn maðurinn sakknaði hans mikið og fór samt alltaf á barinn hann bað alltaf um tvo tvöfaltann aftur og aftur þangað til að þjónninn spurði af hverju biðuru alltaf um tvo tvotvöfaltan ef þú ert bara einn? Því ég er líka að drekka fyrir vin minn og mig en næsta dag sagði maðurinn: ,,Einn bjór takk.” ,,Nú”; sagði þjónninn “af hverju bara einn?” ,,Ég er hættur að drekka ,ég er núna bara að drekka fyrir vin minn.” sagði maðurinn þá.
Ókeypis drykkir
Breti, Íri og skoti eru á bar og drekka og fara að bera saman sögur sínar.
Skotinn byrjar og segir að í Skotlandi sé bar sem heiti McManus, þar kaupi hann sér 4 bjóra og vertinn gefi honum þá þann fimmta.
Írinn segir að það sé ekki neitt, heima hjá sér sé til bar sem heiti O’Malley’s, þar fái hann þriðja hvern bjór í boði hússins.
Bretanum finnst nú ekki mikið til þessa koma og segir að heima hjá sér sé boðið upp á bjór um leið og maður gangi inn, eins mikið og maður vilji. Svo sé manni boðið upp á efrihæðina og þar geti maður fengið drátt. Allt í boðið hússins.
Hinir eru alveg gáttaðir á þessu og spyrja hvort hann hafi sjálfur lent í þessu.
“Ekki ég sjálfur”, segir Bretinn, “en systir mín gerði það!”
Spýtti í bjórinn
Maður fer inn á bar og pantar sér bjór. Eftir smá stund er honum mál á salernið, en vill ekki að einhver stelur drykknum sínum. Hann setur því miða á drykki sem á stendur:”Ég hrækti í bjórinn, ekki drekka hann!” Eftir nokkrar mínútur kemur hann til baka, en þá hafði einhver skrifað fyrir neðan hans eigin skrift:”Ekki drekka, ég hrækti líka í bjórinn”.
Gubbaði á skyrtuna
Jón er ofurölvi á bar og gubbar á skyrtuna sína, sem var glæný. “Andskotinn”, segir hann við barþjóninn,”Ég ældi á skyrtuna mína aftur, kona á eftir að drepa mig þegar hún kemst að þessu”.
“Hafðu engar áhyggur, settu bara 2000 kall í vasann hjá þér og þegar hún spyr þig hvað gerðist, segðu að einhver hafi ælt á þig og borgað þér skaðabætur fyrir þvottinn.”
Morguninn eftir sér konan æluna á skyrtunni, og ætlar að skamma hann, hann bendir þá á skyrtuna og segir konunni að tékka á vasanum í skyrtunni einhver hafi ælt á sig og greitt skaðabætur.
Konan teygir sig í skyrtuna og finnur tvo tvöþúsundkalla. Konan er eitt spurningarmerki.
“Ó, já”, segir Jón,”Hann skeit líka í buxurnar mínar!”
Hélt að hún væri konan sín
Drukkinn maður gengur inn á bar, eftir að hafa horft á konu í nokkra stund gengur hann að henni og kyssir hana. Hún stekkur upp og gefur honum utanundir.
„Afsakaðu“, segir hann,“Ég hélt þú værir konan mín. Þú lítur alveg eins út“.
Konan byrjar þá úthúða honum, kallar hann öllum illum nöfnum, aumingja og fylliraft.
„Fyndið“, segir hann þá, „þú hljómar meira segja eins og hún“
Ljóskan og veðmálið
Tvær ljóskur eru á bar þegar fréttirnar byrja. Í fréttum er sýnt þegar maður stendur á brú um það bil að fara að hoppa fram af. Önnur ljóskan veðjar við hina að hann muni stökkva fram af brúnni.
Nú kemur í ljós í fréttinni að maðurinn stekkur fram af brúnni, svo ljóskan verður að borga.
Hin ljóskan ákveður að viðurkenna að hún hafi svindlað, hún hafi séð fréttirnar klukkan 5 og vitað að hann myndi hoppa.
Hin segir: “Skiptir ekki máli, ég sá það líka, ég trúði bara ekki að hann myndi gera það aftur.”
Óvart inn á KR bar
Valsari er að koma heim af leik í búningnum og ákveður á fá sér einn öllara. þegar hann labbar inn sér hann að hann hafi gert stór mistök, þar sem allir inni voru KR-ingar og hann greinilega kominn inn á KR bar.
Hann er strax gripinn og rétt tenging. “Kastaðu”, segir ógnvekjandi KR-ingur,”Ef þú færð 1-5 þá drepum við þig”.
Valsarinn ánægður með að hann eigi þó einhvern möguleika, spyr þó til öryggis: “Hvað gerist ef ég fæ 6?”
“Þá færðu að kasta aftur” segir KR-ingurinn.
Grátandi á bar
Gamall maður kemur inn á bar og byrjar að gráta. Barþjóninn spyr hvað sé að. Maðurinn með bólgin augu og snöktandi segir: “Ég giftist fyrir tveimur dögum ótrúlega kynþokkafullri konu, 25 ára, ljóshærð, klár og frábær eiginkona”
Barþjónninn hristi hausinn og og spyr af hverju í veröldinni hann sé að gráta, þetta sé draumur hvers manns”
“Ég veit”, sagði sá gamli, “Ég man bara ekki hvar ég á heima!”
Grátandi á bar
Gamall maður kemur inn á bar og byrjar að gráta. Barþjóninn spyr hvað sé að. Maðurinn með bólgin augu og snöktandi segir: “Ég giftist fyrir tveimur dögum ótrúlega kynþokkafullri konu, 25 ára, ljóshærð, klár og frábær eiginkona”
Barþjónninn hristi hausinn og og spyr af hverju í veröldinni hann sé að gráta, þetta sé draumur hvers manns”
“Ég veit”, sagði sá gamli, “Ég man bara ekki hvar ég á heima!”
Nægjanlega fullur
Maður kemur inn á bar og pantar einn tvöfaldan Wiskey . Hann klárar hann, kíkir í vasann og pantar anna. Hann drekkur hann í einum teig og lítur í vasann aftur, og svona heldur þetta áfram. Þegar hann er búinn með 6 drykki spyr barþjóninn hvað hann sé eiginlega að gera. “Ég er með mynd af eiginkonunni í vasanum, þegar mér finnst hún vera orðin sæt er kominn tími til að hætta að drekka”, svarar maðurinn.