Category: bílar

Ókeypis kynlíf

Tveir hálfvitar keyrðu inn á bensínstöð. Á hurðinni þar var skilti sem stóð á “Ef þú kaupir fullan tank af bensíni getur þú tekið þátt í bensín leiknum vinningurinn er ókeypis kynlíf.” Þetta fannst hálfvitunum mjög spennandi og keyptu báðir fullan tank.

Þeir fara og taka þátt í leiknum hjá bensínstöðvarstjóranum. Hann segir við þá ég hugsa upp tölu milli 1 og 10 og ef þið getið hana rétt, fáið þið ókeypis kynlíf. Fyrsti bjáninn sagði “fimm.” “Nei ég var að hugsa með mér 3″ sagði bensínstövarstjórinn. Vinur hans giskaði á 7 en þá sagðist stöðvarstjórinn hafa hugsað 8.

Næstu vikuna komu lúðarnir næstum á hverjum degi til að kaupa fullan tank en unnu aldrei.

Loksins var annar orðinn leiður á þessu og sagði við hinn: “Heldurðu nokkuð að það sé svindl í gangi í þessum leik?”. “Engin leið!” sagði vinur hans “Konan mín er sko búin að vinna fimm sinnum í röð!”

Sektin

Ég fór í verslun um daginn. Ég var bara í 5 mínútur og þegar ég kom út var djöfilsins andskotans lögga að skrifa sektarmiða. Svo ég gekk að honum og sagði, “Heyrðu félagi, hvernig væri að gefa mönnum smá sjéns ?” Hann leit ekki við mér og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, svo ég kallaði hann blýantsnagandi nasista. Hann leit snögg á mig og byrjaði á því að skrifa annann sektarmiða fyrir of slitin… dekk undir bílnum. Þá kallaði ég hann rolluríðandi, hoppandi fáráðling. Hann lauk við að skrifa miða nr. 2 og setti hann á bílinn með fyrsta miðanum. Svo byrjaði hann að skrifa þriðja miðann !! Svona gekk þetta í um 20 mínútur, því meira sem ég svívirti hann, því fleiri sektarmiða skrifaði hann. Mér var í raun andskotans sama, en þið hefðuð átt að sjá svipinn á honum þegar ég fór yfir götuna að vespunni minni og keyrði burt……

Page 1 of 11