Category: blindir
Læknir og blinda
Læknir, læknir! Ég held ég sé orðinn blindur!
Já það held ég líka, þetta er Pósthúsið!
Blindimaðurinn og ljóskubrandarinn
Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér glas.
Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann á barþjóninn: “Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?”
Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: “Áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast af því þú ert blindur, að ég fræði þig um fáein atriði:
Barþjónninn er ljóshærð kona.
Útkastarinn er ljóshærð kona.
Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate, og ég er ljóshærð.
Konan við hliðina á mér er ljóshærð og íslandsmeistari í lyftingum.
Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarækt.
Hugsaðu þig vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?”
Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið. “Nei, ætli það”, segir blindi maðurinn, “Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum.”
Blindir í fallhlífastökki
Sp: Af hverju fara blindir í fallhlífastökk?
Sv: Því blindrahundarnir verða alveg skíthræddir