Category: Flugmenn

Saman í flugi

Davíð Oddsson og Geir Haarde sitja saman í einu flugi. Þegar Davíð segir
skyndilega.
-Ef ég myndi henda þúsund krónum út um gluggann, þá myndi ég gera eina
persónu glaða.
-Geir svarar og segir. Ef ég myndi henda 10-þúsund út um gluggann, þá myndi
ég gera 10 persónur glaða í dag.
-Flugstjórinn hlustar eftir þeirra tali og segir til þeirra. Ef ég myndi
henda ykkur báðum út af fluginu. Þá myndi ég gleðja heila þjóð!!!!

Hugbúnaður

Á ráðstefnu hugbúnaðarsérfræðinga voru þeir spurðir eftirfarandi spurningar:”Myndir þú fljúga með flugfélagi ef þú vissir að þitt hugbúnaðarfyrirtæki þróað hugbúnaðinn sem stjórnaði flugumferðinni”.

Allir nema 1 lyftu hendinni. Þegar umsjónarmaðurinn spurði manninn hvort hann væri bara sáttur við sitt fyriræki. Hann játaði og sagði að ef hans fyrirtæki hefði þróað hugbúnaðinn myndi flugvélin ekki einu sinni ná að keyra frá rananum.

Lestur flugstjórans

Kona situr í sæti upp við flugmannsklefann. Þegar hurðin opnast sér hún að flugstjórinn er að lesa. Hún spyr því flugfreyjuna, hvað sem um að vera, hvort hann þurfi ekki að fljúga flugvélinni og af hverju hann sé að lesa frekar en að sinna vinnunni sinni. “ahh, hann er nú bara að læra fyrir flugmannsprófið sitt”, svarar flugfreyjan.

Guð minn góður

Flugvél er á leiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja, flugvélin er komin í rétta flughæð og flugmaðurinn byrjar að lesa í hátalarakerfið. “Við erum nú komin í rétta flughæð og flugið mun var í hálftíma, vonandi að þið njótið flugsins… GUÐ MINN GÓÐUR”. Eftir þessi skilaboð var þögn í nokkurn tíma en svo kom flugmaðurinn aftur í hátalarakerfið. “Afsakið þetta, það er ekkert að óttast, flugfreyjan var að færa mér kaffi og helti kaffi yfir mig. Þið ættuð að sjá framan á buxurnar á mér”. Þá heyrist í einum farþeganum:”Framan á buxurnar á þér! Þú ættir að sjá aftan á mínar”

Flugmaðurinn og byssann

Flugstjóri situr með nýja aðstoðarflugmanninum sínum þegar hann dregur fram .38 handbyssu og setur ofan á stýrið hjá sér.  Hann spyr svo nýja aðstoðarflugmanninn sinn: “Veistu til hvers þessi er?”  Aðstoðarflugmaðurinn segist ekki vita það. “Ég mun nota hana á aðstoðarflugmanninn ef við týnumst!” segir flugmaðurinn. Þá dregur aðstoðarflugmaðurinn upp .45 og setur á GPS-inn. Flugstjórinn lítur undrandi á hann og spyr til hvers þetta sé. “Til að vera fullkomlega heiðarlegur”, segir aðstoðarflugmaðurinn, “þá veit ég að við erum týndir á undan þér!”

Page 1 of 11