Category: Fullorðins

Fuglinn í búrinu

Ung og kynæsandi stúlka í pínupilsi og gagnsærri blússu kom inn í fugla- og fiskabúðina og vildi kaupa kanarífugl.
Afgreiðslumaðurinn benti henni á stórt búr sem í voru nokkrir tugir kalkúna.
“Ég held ég vilji þennan þarna risa stóra”, sagði stúlkan.
“En það er ekki sjens að ná svona einum sérstökum fugli úr búrinu”, sagði afgreiðslumaðurinn, sem sjálfur gat varla haft augun af deplunum tveimur sem sáust á bringu stúlkunnar í gegn um blússuna.
“Ef þú nærð honum fyrir mig skaltu fá það sama og slátrarinn á horninu fékk hjá mér fyrir jólagæsina.”
Afgreiðslumaðurinn lét ekki segja sér það tvisvar en skreið inn í búrið. Eftir hálftíma kom hann út rispaður og löðursveittur og útataður í fugladriti, en rétti stúlkunni sigri hrósandi kanarífuglinn með blettinum á bringunni. “Jæja”, másaði hann og skalf af tilhlökkun. “Hvað var það sem slátrarinn fékk hjá þér fyrir gæsina?”

“Hundrað kall fyrir kílóið.”

Ókeypis kynlíf

Tveir hálfvitar keyrðu inn á bensínstöð. Á hurðinni þar var skilti sem stóð á “Ef þú kaupir fullan tank af bensíni getur þú tekið þátt í bensín leiknum vinningurinn er ókeypis kynlíf.” Þetta fannst hálfvitunum mjög spennandi og keyptu báðir fullan tank.

Þeir fara og taka þátt í leiknum hjá bensínstöðvarstjóranum. Hann segir við þá ég hugsa upp tölu milli 1 og 10 og ef þið getið hana rétt, fáið þið ókeypis kynlíf. Fyrsti bjáninn sagði “fimm.” “Nei ég var að hugsa með mér 3″ sagði bensínstövarstjórinn. Vinur hans giskaði á 7 en þá sagðist stöðvarstjórinn hafa hugsað 8.

Næstu vikuna komu lúðarnir næstum á hverjum degi til að kaupa fullan tank en unnu aldrei.

Loksins var annar orðinn leiður á þessu og sagði við hinn: “Heldurðu nokkuð að það sé svindl í gangi í þessum leik?”. “Engin leið!” sagði vinur hans “Konan mín er sko búin að vinna fimm sinnum í röð!”

Þurrkunin

Kerlingin var í hlandspreng hún stormaði inn á herra klósettið tók niður buxurnar og settist á hlandskálina, þegar hún var búin þá hleypti hún út smálofti og leit í kringum sig og uppgvötaði að þar stóð maður. Skömmustuleg og niðurlút sagði hún, þið karlar þurfið bara að hrista hann …. meðan við konurnar þurfum að þurka hana með blæstri …

Dáleiðarinn

Kona ein kom heim til sín og sagði við eiginmanninn; “Veistu að höfuðverkjakösin sem ég hef verið að fá undanfarin ár eru alveg horfin”. “Hvað segiru, hvað gerðist?” spurði maðurinn.“Hún Magga ráðlagði mér að fara til dáleiðara og hann sagði mér að standa fyrir framan spegil, stara á sjálfa mig og endurtaka; Ég hef ekki hausverk, ég hef ekki hausverk. Og ég hef ekki fengið höfuðverk síðan. Þetta virkaði svona æðislega vel.”“Þetta er frábært, þetta er æðislegur árangur.” Sagði maðurinn. Þá sagði eiginkonan; “Þú hefur ekki verið neinn orkubolti í rúminu síðustu árin. Af hverju drífur þú þig ekki til dáleiðarans og athugar hvort hann geti ekki gert eitthvað fyrir þig svo þetta lagist?” Eiginmaðurinn samþykkti að prófa og eftir heimsókn til dáleiðarans kom hann heim og þreif konuna í fangið,
reif hana úr fötunum og bar hana inní svefnherbergi, lagði hana í rúmið og sagði “Bíddu smá, ég verð enga stund”. Svo fór hann inná baðherbergi og kom til baka stuttu seinna og seinni ástarleikurinn með konunni var enn betri en sá fyrri og annað eins hafði eiginkonan ekki upplifað árum saman.Konan settist upp í rúminu en eiginmaðurinn sagði þá; “ Ekki hreyfa þig, ég kem eftir smá” og svo dreif hann sig aftur inná baðherbergið. Konan var forvitin og læddist á eftir honum og sá að hann stóð fyrir framan spegilinn og endurtók í sífellu, “Hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín.”

Framhjáhald í sókninni

Einu sinni var gamall prestur sem var kominn með nóg af því að fólkið í sókninni hans var alltaf að játa framhjáhald í ritningarstólnum. Einn sunnudaginn í messu sagði hann “Ef ég heyri eina manneskju enn játa framhjáhald þá hætti ég!” Öllum líkaði vel við prestinn svo að þau fundu uppá leyniorð. Ef einhver þyrfti að játa framhjáhald þá myndi hann segja í staðinn að hann hefði dottið.

Þetta virtist vera ásættanlegt fyrir prestinn og gengu hlutirnir vel þangað til presturinn lést af elli. Nokkrum dögum eftir að nýi presturinn kom fór hann á fund hjá bæjarstjóranum, mjög áhyggjufullur. “Bæjarstjóri, þú verður að gera eitthvað í þessu með gangstéttirnar. Þegar fólk kemur í ritningarstólinn minn þá segja þau öll að þau hafa dottið!”

Bæjarstjórinn áttaði sig á því að enginn í bænum væri búinn að segja honum frá leyniorðinu og byrjaði að skellihlæja.
En áður en hann gat útskýrt þetta benti presturinn reiðilega á hann og sagði: “Ég skil ekki af hverju í ósköpunum þú ert að hlæja, konan þín er búin að detta þrisvar sinnum í þessari viku…”

Nýja styttan

Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum. Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skránna á útidyrahurðinni.
Konan reynir að finna einhvað ráð í flýti . Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður.
Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta.
“Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það,” segir hún og klæðir sig í flýti. “Stattu bara þarna grafkyrr.”
Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: “Elskan hvað er nú þetta?”
“Þetta æji þetta er bara stytta,” segir konan kærulaus. “Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart.”
Ekkert er rætt meira um “styttuna”, ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni.
“Gjörðu svo vel,” segir hann. “Ég stóð eins og hálviti hjá Jón og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt.”

Seinasta meðlagsgreiðslan

Gunna mín,” segir pabbinn við dóttur sína á 18 ára afmælinu, “taktu þessa ávísun, færðu mömmu þinni hana og segðu henni að þetta sé síðasta meðlagsgreiðslan sem hún á nokkurn tíma eftir að fá frá mér og sjáðu svipinn á henni!”

Dóttirin gerir það og segir við mömmu sína: “Mamma! Pabbi sagði að ég ætti að láta þig fá þessa ávísun og sjá svipinn á þér þegar ég segði þér að þetta væri síðasta meðlagsgreiðslan sem þú fengir frá honum.”

“Sagði hann það já,” segir mamman, “viltu þá ekki fara og sjá svipinn á honum þegar þú getur sagt honum að hann sé ekki pabbi þinn..”

Mikilvæg ráð fyrir einhleypar konur

Hér er fimm mikilvæg ráð fyrir einhleypar konur.

  • 1. Mikilvægt er að finna mann sem er bæði í fullri vinnu og húslegur.
  • 2. Mikilvægt er að finna mann sem kemur þér til að hlæja.
  • 3. Mikilvægt er að finna mann sem hægt er að treysta og lýgur ekki að þér.
  • 4 Mikilvægt er að finna mann sem elskar þig og dekrar við þig.
  • 5. Mikilvægt er að þessir fjórir menn þekkist ekki?

Megrunin

Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim “misstu 5 kg á 5 dögum” pakkann.
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur “…Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig”.
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim
“misstu 10kg á 5 dögum” pakkann.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur “Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig”.
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar “misstu 25 kg á 7 dögum” pakkann.
“Ertu alveg viss?”spyr sölumaðurinn ” Þetta er erfiðasta prógrammið okkar”
“Ekki spurning” svarar félaginn, “mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár”.
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur “Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!”
Félaginn missti 32 kg í þeirri viku

Að sofa hjá sjúklingi

Hann Guðmundur var með samviskubit. Alveg sama hvað hann reyndi, hann bara gat ekki gleymt þessu. Hugsanir um spillt siðgæði og brot á læknareglum voru að kæfa hann.
En einstöku sinnum heyrði hann rödd í huga sér segja: “Guðmundur, ekki hafa áhyggjur af þessu. Þú ert örugglega ekki fyrsti læknirinn sem sefur hjá einum af sjúklingum þínum, og örugglega ekki sá síðasti.”En svo heyrðist önnur rödd innra með honum, aðeins háværari: “En Guðmundur, þú er dýralæknir”!

Að sjúga út eitrið

Tveir menn í skógi. Annar þeirra fór á næsta tré að pissa. Eftir smá-
stund heyrðist öskur. Hinn kom hlaupandi og spurði hvað hafi skeð.
Það beit mig eitruð slanga í typpið á mér. Hinn hringir í ofboði í neyðar-
línuna og fær samband við lækni, en læknirinn sagði: “Slappaðu af, þú
sýgur eitrið út og hann lifir.” Þegar hann kemur úr símanum þá spyr
sá bitni, emjandi af kvölum: “Hvað sagði læknirinn?”. “Þú deyrð”, sagði hinn þá.

Hvað þýðir að fara alla leið?

Maður bauð dömu í bíó um daginn. Hangover part 2 í Smárabíói. Hann sótti hana eins og herramanni sæmir, opnaði hurðina fyrir henni og hún sest inn. Þau leggja af stað og hún snýr sér að honum og malar: “Vil bara að þú vitir. Ég fer ekki alla leið á fyrsta deiti”

Svo hann lét hana út á Dalveginum…….

Nýju netföngin

Á Landspítalanum var ákveðið að taka upp nýtt kerfi við að úthluta starfsmönnum tölvupóstfangi. Það átti að vera fyrstu þrír stafir í fornafni, fyrstu þrír í eftirnafni og fyrstu þrír í starfsheiti @landspitali.is. Rúnar Karlsson sérfræðilæknir sagði strax upp störfum!

Að ná í lögulega skvísu

Gamall maður í frekar lélegu formi tók upp á því að fara í ræktina. Einn daginn sér hann eina lögulega skvísu að æfa hinum megin í salnum. Hann segir við þjálfarann sinn: Í hvaða vél þarf ég að fara til að ganga í augun á þessari? Þjálfarinn lítur á hann og mælir upp og niður og segir svo: Prófaðu hraðbankann í anddyrinu!!

Barnapían

Jón kom hlaupandi til mömmu sinnar: Mamma, barnapían mín er engill!
Nú, af hverju heldurðu það?
Af því að hún er á hnjánum inní herbergi og kallar: Guð, ég er að koma!! En þetta er allt í lagi, pabbi heldur henni fast og passar að hún fljúgi ekki burt.

Page 1 of 41234