Category: tengdamömmu
Tengadamamma
Hjón voru að fara út að djamma til að halda uppá afmæli konunnar. Þegar þau eru að gera sig klár til brottfarar, skýst köttur inn í húsið. Í sömu andrá kemur leigubíllinn.
Þau vildu auðvitað ekki að ókunnugur köttur hlypi um allt hús á meðan þau voru í burtu, svo maðurinn fer aftur inn til að ná honum, en konan fer í leigubílinn.
Konan vildi auðvitað ekki heldur að leigubílstjórinn vissi að hú…sið væri tómt, svo hún segir:
“Hann kemur eftir smá stund, hann er bara að kveðja mömmu.”
Nokkrum mínútum seinna kemur maðurinn inn í bílinn:
“Afsakið hvað ég var lengi, helvítis kvikindið var búið að skríða undir hjónarúm.. þurfti að pota með herðatré undir rúm til að ná helvítinu undan!”
Hver er refsingin við tvíkvæni?
Kennari sem er að kenna lögfræði. “Vitið þið hver er refsingin við tvíkvæni?” ,spurði hann nemendurna. Einn neminn réttir upp hendina og svarar:”Já, tvær tengdamömmur.”
Sú gamla
Skúli kom nokkuð seint heim og var vel í glasi, mætti tengdamömmu í ganginum með helja mikinn strákúst í höndunum. Sú gamla var galvösk að sjá og horfði þegjandi á tengdasoninn. Honum leist ekkert á blikuna, en leit á þá gömlu og sagði: Ertu að sópa eða ertu að fara að fljúga heim?
Þjófur að borða kökuna
Kona vekur manninn sinn um miðja nótt og segir honum að það sé þjófur niðri að ég kökuna sem móðir hennar hafði bakað. „Hvort á ég að hringja í lögguna eða sjúkrabílinn fyrst?“